Heim Hafðu samband










Fimmtudagur 15. 05. 08
Aðalfundur FSSA 2008

DAGSKRÁ

Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum FSSA:

1)   Skýrsla stjórnar.

2)   Reikningsskil og áætlun um tekjur og gjöld næsta árs.

3)   Tillögur frá stjórn og félagsmönnum.

4)   Kjör stjórnar og formanna vinnuhópa.

5)   Kjör skoðunarmanna reikninga.

6)   Önnur mál; 

Tímanotkun arkitekta við hönnun mannvirkja

FSSA hefur falið fyrirtækinu ParX að vinna að upplýsingaöflun og skýrslugerð um tímanotkun arkitekta við hönnun mannvirkja. Leitað verður upplýsinga hjá aðildarfyrirtækjunum um rauntímanotkun við mannvirkjagerð á ákveðnu árabili. Það er von stjórnar félagsins að niðurstöður úr þessari vinnu verði mikilvægt gagn fyrir arkitektastofur við áætlanagerð vegna mismunandi mannvirkja, nýtist við alla samningagerð og komi að góðum notum í hagsmunagæslu gagnvart hinu opin­bera.

Fulltrúar frá ParX munu kynna verkefnið fyrir fundarmönnum.

Fyrirspurnir og umræður að lokinni kynningu.

Fundarmönnum verður boðið upp á hádegisverð á með­an á fundi stend­ur – blandaður tapas diskur að hætti hótelsins, parma vafinn kjúklingabringa með hnetu kartöflum og blómkálsmauki og kaffi eða te á eftir.

 Nauðsynlegt er því að tilkynna þátttöku til félagsins í síðasta lagi miðviku­daginn 14. maí nk.

 Tölvupóstur: fssa@fssa.is  Sími: 553 4200  Nægilegt er að svara tölvupósti þessum.

 

 

Stjórn FSSA.