UM FSSA
Stofnað: Í árslok 1998.
Aðild: Fyrirtæki sem veita ráðgjöf á sviði skipulags- og byggingarmála og eru rekin á ábyrgð arkitekts sem uppfyllir skilyrði félagsins um þekkingu og reynslu.
Markmið: Gæta hagsmuna félaga sinna, efla álit þeirra og stuðla að faglegum vinnubrögðum. Einnig að koma fram fyrir hönd aðildarfyrirtækjanna varðandi sameiginleg hagsmunamál samkvæmt ákvörðun stjórnar og/eða aðalfundar.
FSSA er aðili að kjarasamningi við Launþegafélag Arkitektafélags Íslands.
Heimilisfang: Engjateigur 9, 105 Reykjavík
Kennitala: 701298-3309
Sími: 553 4240
Fax: 553 9480
Tölvupóstur: fssa@fssa.is
Tengsl við önnur félög og samtök
FRV: FSSA starfar með FRV, Félag ráðgjafarverkfræðinga, varðandi ýmsa málaflokka þar sem hagmunir arkitekta og verkfræðinga fara saman s.s. varðandi samningsskilmála, gæðakröfur og fleira.
Norðurlönd: FRV á gott samstarf við hliðstæð félög á Norðurlöndum; Danske Ark í Danmörku, NPA í Noregi, \STD í Svíþjóð og ATL í Finnlandi.
3. grein laga félagsins:
Aðildarfyrirtæki skulu rekin á ábyrgð arkitekts með full starfsréttindi sem uppfyllir jafnframt eftirtalin skilyrði:
Hefur 7 ára starfsreynslu á sviði skipulags- og/eða byggingarmála.
Hefur ráðgjöf á sviði skipulags- og/eða byggingarmála að aðalstarfi.
Aðildarfyrirtæki og starfsmenn þess skulu ekki hafa tengsl við framleiðslu-, verktaka eða verslunarfyrirtæki né aðra starfsemi, sem kunna að hafa áhrif á ráðgjöf fyrirtækisins.
Starfsmenn aðildarfyrirtækis skulu ávallt gæta fyllsta trúnaðar við verkkaupa og upplýsa hann um hvaðeina er ætla má að geti haft áhrif á ákvarðanatöku hans í tengslum við verk.
Starfsmenn aðildarfyrirtækis skulu koma fram gagnvart öðrum ráðgjöfum af háttvísi og tillitssemi og forðast að gera neitt það sem gæti skaðað orðspor þeirra.
Aðildarfyrirtæki er ábyrgt fyrir því að eigendur og starfsmenn starfi samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Stjórn FSSA getur veitt undanþágu frá skilyrði um 7 ára starfsreynslu skv. 1. mgr.